- ½ bolli smjör
- 1 ½ bolli sykur
- 2 egg
- 3 þroskaðir bananar
- 1 bolli sýrður rjómi
- 1 tsk vanillusykur (eða dropar)
- 1 tsk kanil
- 1/4 tsk salt
- 3 tsk matarsódi
- 2 1/4 bolli hveiti
- 4 msk nutella
mánudagur, 23. júní 2014
Spari bananabrauð
miðvikudagur, 2. apríl 2014
Speltvefja
Þessar eru himneskar
Speltvefja úr bókinni Grænn Kostur Hagkaupa eftir Sólveigu Eiríksdóttur (sem er komin á óskalistann minn ) og úr Vefsjónvarpi Ebbu.
5 dl gróft spelt
2 msk sesamfræ
1 tsk sjávarsalt eða himalayasalt
1/2 dl kaldpressuð ólífuolía
150-170 ml heitt vatn
*Speltvefjur eru bakaðar á pönnu við fremur mikinn hita í um eina mínútu á hvorri hlið eða í ofni við 250 gráður í um eina mínútu á hvorri hlið.
*Spelt súpubrauð eru bökuð við lægri hita í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
sama uppskrift en bara minni og pattaralegri
linkur á Ebbu
laugardagur, 22. mars 2014
Brauðhleifur
Prufaði þennan hleif og var svona rosalega ánægð :)
Brauðhleifur
4 dl spelt (1 fínt og 3 gróft)
2 dl íslenskt byggmjöl
1 dl haframjöl (ég kaupi glútenlaust)
1 dl kókosmjöl
1 msk. vínsteinslyftiduft*
1 tsk. sjávarsalt
2 dl lífræn hrein (grísk) jógúrt
1½ dl heitt vatn
- Hitið ofninn í 200°C.
- Blandið saman þurrefnunum og svo blautu
efnunum. - Ekki hræra of mikið eða of lengi svo
deigið verði ekki seigt. - Setjið deigið á bökunarpappír á
bökunarplötu og bakið í um 25-30 mín eða þangað til hleifurinn er orðinn
gullinn og fallegur
Til að athuga hvort brauð (kökur) sé tilbúið, getið þið stungið í það prjóni, og ef hann kemur hreinn upp úr er brauðið bakað í gegn.
Þið getið endilega bætt við 1-2 dl af fræjum í þessa uppskrift, bætið þá
bara við vökva ef ykkur finnst þurfa.
* Vínsteinslyftiduft: Er lyftiduft sem má nota í allan bakstur
eins og annað lyftiduft. Vínsteinslyftiduft er unnið úr svokölluðum vínsteini
sem er hvíta duftið/saltið sem verður eftir innan á víntunnum þegar
vínberjasafinn hefur gerjast í þeim. Svo er því blandað við maíssterkju og
natrium carbonat til að gefa góða lyftiduftsblöndu. Þumalfingursreglan er 1 tsk
vínsteinslyftiduft fyrir hver 100g af mjöli.

tekið af síðunni hennar Ebbu á Rúv.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)